Færsluflokkur: Bloggar

Ekki það gáfulegasta í stöðunni.

Það að reka mann úr Sniglunum fyrir vítaverðan ofsaakstur lítur mjög vel út, svona fljótt á litið.  Jú, jú, Sniglarnir koma vel út í fjölmiðlum og eru áfram góðu gæjarnir í umræðunni um ofsaakstur, afstungur og það allt.  En.. gleymist ekki af hverju samtökin voru stofnuð á sínum tíma? Var það ekki til að bæta ímynd, samstöðu og umferðarmenninguhjólafólks?  Hvers vegna þá að útskúfa þeim sem þarf helst að ná til? Ekki rekur FÍB sína félaga fyrir samskonar hegðun. Það eykur ekki á samstöðuna heldur eykur á klíkumyndanir og tortryggni milli hjólafólks. Það væri án efa betra að reyna að ræða við viðkomandi aðila og sýna honum fram á hve slæmt og óábyrgt það er að hegða sér svona í umferðinni. Það lyktar líka af hræsni að reka mann fyrir að aka of hratt, þegar svo til hver einasti ökumaður þessa lands brýtur einhver umferðarlög á hverjum degi. Það þarf enginn að segja mér að þeir sem tóku þá ákvörðun að reka manninn úr Sniglunum, hafi aldrei ekið yfir löglegum hámarkshraða.. Þessi einstaklingur gerði sig sekan ljótt lögbrot og sýndi mikinn dómgreindarskort.  Hann fær án efa nægilega þunga refsingu hjá dómsvaldinu, það er óþarfi að bæta þar um betur.

Ps. Það skal tekið fram að ég er sjálfur meðlimur í Sniglunum.


mbl.is Fyrrum formanni Sniglanna vikið úr samtökunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Foreldrar, passið börnin ykkar !!!

Ég bloggaði um daginn vegna fréttar um að sundlaugavörður hefði bjargað barni frá drukknun og ég fékk frekar bágt fyrir að spyrja hvað móðirin hefði verið að hugsa... (Sjá blogg hér fyrir neðan) En það virðist bara ekki veita af að rífa kjaft til þess að einhver hlusti.  Ég er svo innilega sammála Herdísi Storgaard að það eigi að rannsaka þessi slys nákvæmlega og finna út hjá hverjum sökin liggur, en ekki bara þakka guði fyrir að ekki fór verr. Það er hrikalegt að heyra að foreldrar séu að senda börnin sín í marga klukkutíma eftirlitslaus á Ylströndina í Nauthólsvík, og treysta á að strandverðirnir passi upp á þau.  Það er auðvitað líka alveg ótækt að gæsla við sundlaugar sé ekki nægjanleg, en hitt er þó miklu alvarlagra að foreldrar á Íslandi, passa börnin sín illa.!!
mbl.is Einn gætti 500 sundgesta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemur ekki á óvart !!

Það undrar mig ekki að það reiðhjólamaður hafi verið ekinn niður á þessum gatnamótum.  Bæði það að bílsjórar virða lítt gönguljósin og svo hitt að reiðhjólafólk sýnir oft fádæma dómgreindarskort, hjólar á götunni þrátt fyrir góða hjólastíga og skeytir hvorki um skömm né heiður gagnvart öðrum vefarendum.  Ég veit ekki hvað olli þessu slysi en það undrar mig að þau skuli ekki vera mun tíðari miðað við umferðarmenninguna á þessum gatnamótum og víðar  í borginni.
mbl.is Ekið á hjólreiðamann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samanburðarsýki....

Horfði á frétt um þetta mál á Stöð 2 áðan og þar spurði fréttamaðurinn afar heimskulegrar spurningar. "Hvað réttlætir að selja íbúð á 230 milljónir?"  Svarið er að sjálfsögðu afar augljóst: Framboð og eftirspurn, hvað annað?  Ef einhver er tilbúinn að borga þá er ekkert að því að selja á þessu verði, svo framarlega að kaupandinn sé ekki blekktur á neinn hátt. Í þessu sambandi vil ég minnast á samanburðarsýkina sem svo allt of margir eru haldnir hér á landi..  Það má aldrei neinn hafa það gott án þess að einhverjir fara að væla og veina og heimta það sama.  M.a.s. fátæktarviðmið eru reiknuð þannig að ef tekjur hinna hæstlaunuðu hækka þá fjölgar sjálfkrafa "fátækum" því að viðmiðunarmörkin hækka, þó svo að verðlag hækki ekki á sama tíma. Og launþegasamtökin eru aðallega í því að finna út tekjur samanburðahópa svo þau "dragist ekki afturúr"en ekki hvort launin hæfi menntun, ábyrgð og afköstum umbjóðenda þeirra.

Það er ekkert rangt eða slæmt við það að einhverjir verði moldríkir.  Það er nefnilega þannig að það er enginn ríkur nema hann noti peningana sína.  Og það erum við hin sem njótum þess með aukinni verslun og framkvæmdum. Samfélagið fær virðisaukaskatt, tekjuskatt og fjámagnstekjuskatt af öllu brölti ríka fólksins hér innanlands.  Því ber okkur að sjá til þess að þeir moldríku verði ekki hraktir úr landi sökum öfundar almúgans eða skattagræðgi hins opinbera.

Við ættum að sjálfsögðu að fagna því að einhverjir hafi dug og þor til að bjóða íbúð á 230 milljónir og vonandi fá þeir kaupanda sem fyrst.


mbl.is Dýrasta íbúðin á 230 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það skyldi þó aldrei vera.....

Alveg finnst mé það með ólíkindum að Ari Edvald ætli að þvinga Egil til að vinna fyrir 365.  Hefur maðurinn engan sens fyrir því að það er ekki hægt að reka fjölmiðil með fólki sem ekki vill vinna fyrir miðilinn.  Það er hægt að þvinga menn með látum til að moka skurð, en ekki stjórna sjónvarpsþætti.  Setjum svo að Egill yrði að halda áfram  hjá 365. Honum yrði það í lófa lagið að hrauna yfir fyrirtækið og stjórnendur þess,  og yfirleitt gera það sem honum sýnist í þáttum sínum.... Nema, - að yfirmenn á Baugsmiðlunum ritstýri blaða og fréttamönnum... Það skyldi þó aldrei vera... Þá væri allavega komin góð ástæða fyrir Egil að flytja sig um set.
mbl.is Deila um hvort Egill hafi verið búinn að semja við 365
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stóriðjustopp - fiskveiðistopp.

Það var eins gott að Steingrímur og félagar komust ekki til valda í vor. Ímyndið ykkur bara hvað gerst hefði ef stóriðjustoppið hefði bæst ofan á þessi tíðindi frá Hafró.. Hvert hefði krónan fallið þá, hvert hefði lánshæfismatið og hlutabréfaverðið farið.  Það er nefnilega þannig með Íslenskt efnahagslíf að þó að það sé allt í blóma í dag, þá er það mög viðkvæmt fyrir öllum breytingum.  Í efnahagslegu tilliti erum við ekki eins og stórt olíuskip, frekar eins og sportbátur.. Það væri gaman ef einhver spyrði Steingrím hvort hann hafi hugsað til þess möguleika þegar hann vildi setja bremsu á eitt af hjólum atvinnulífsins að það gæti sprungið á öðru hjóli...
mbl.is Steingrímur: Köld sturta við viðkvæmar aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litlir menn með stóran ramma...

Ég var að glugga í Blaðið og hljóp yfir viðtal við Svölu Torlacius um refsingar þær sem kynferðisbrotamenn eru dæmdir til.  Og mig setti hljóðan.  Það er ekki ofsögnum sagt af vorkunnsemi og hjartagæsku dómaranna við þessa blessaða menn sem "lenda í því" að nauðga konum og börnum, (örugglega alveg óvart)!!! Ef þetta eru fólskulegar nauðganir  þá fá þeir kannski 3 - 4 ár en kannski ekki nema 12 - 18 mánuði ef þeir hafa bara beitt hótunum, (það er nefnilega ekki sama hvaða aðferð notuð er við glæpinn). Refsiramminn er 16 ár, en það hefur víst aldrei hvarflað að dómurum þessa lands að nota hann allan.  Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda hvernig líkamlegar misþyrmingar þyrfti að bera á borð fyrir dómara þessa lands til að þeim fyndist ástæða til að nýta rammann til fullnustu.

Því miður eru þau ótalin fórnarlömbin sem hafa þurft að upplifa þann hrylling, en það sést bara ekki á yfirborðinu hvernig þeim líður.  Það sem þessir dómarar virðast ekki skilja er að það er alveg sama hvernig verknaðurinn er framkvæmdur, það eru afleiðingarnar fyrir fórnarlambið sem skipta máli.  Það er hægt að myrða manneskju andlega og það gerist við nauðgun... Sálarlíf fórnarlambsins fer varanlega úr skorðum.  Það þarf ekki að leita lengi í kunningjahópnum til að finna einhvern sem hefur verið eyðilagður andlega af einhverjum óþverranum.  Það þarf ekki að koma á óvart að vinkonan sem virðist eingöngu getað fundið sér ofbeldismenn til að búa með, eða vinurinn sem kemst aldrei með út á lífið vegna þess að hann er útúrdrukkinn í grillpartíinu, hafi orðið fyrir misnotkun í æsku eða verið nauðgað á einhverri útihátíðinni. 

Mér finnst það lágmarkskrafa að kynferðisofbeldismenn séu dæmdir til þungra refsinga, þó ekki sé til annars en að samfélagið sé öruggt fyrir þeim á meðan þeir eru innilokaðir.  Það er einnig algjört skilyrði að þeir sem eru dæmdir fyrir kynferðisbrot fái sálfræðimeðferð meðan á refsingu stendur og það sé gert raunhæft mat á þeirri hættu sem af þeim getur stafað eftir að þeir fá aftur frelsi.  Og þegar barnaníðingar eiga í hlut, þá er vönun, annaðhvort með lyfjum eða geldingu hæfileg refsing við annað brot.  Það eru reyndar skiptar skoðanir meðal sérfræðinga hvort vönun slær á barnagirndina, en ef þetta er ekki lækning þá er það allavega refsing...

Það er ótrúlegur fjöldi fólks sem ber harm sinn í hljóði og á í innri baráttu eftir að hafa orðið fyrir nauðgun. Sálfræðihjálp á Íslandi er dýr og það tekur oft langan tíma og mörg viðtöl hjá sálfræðingi að fá sálarsárin til að gróa. Hvers vegna er ekki sálfræðiaðstoð niðurgreidd eins og geðlæknishjálp?  Kannski vegna þess að geðlæknar geta skrifað upp á pillur en sálfræðingarnir hjálpa fólki að hjálpa sér sjálfu.

Og við dómara þessa lands vil ég segja, mikið eru þið lánsöm að hafa aldrei lent í þessu sjálf.  En kannski er það samt það sem þarf að gerast til að þið skylduð....  Þið mynduð kannski nýta refsiramman betur..


Hestar eru háskagripir

Það er eins og ég hef alltaf sagt, hestar eru varasamir að framan, hættulegir að aftan og óþægilegir í miðjunni. Þar að auki eru þeir vísir til að hrella mótorhjólamenn eins og dæmin sanna. Það er nú munur en við hjólamennirnir, aldrei eru hjólin okkar að ráðast að hestamönnum upp á sitt einsdæmi.
mbl.is Þurfa að bæta tjón vegna hests sem slapp úr girðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað var móðirin að hugsa!!!

Ég vil byrja á því að óska Jóhanni til hamingju að hafa getað bjargað lífi litlu telpunnar, það verður vonandi fleirum hvatning til að fara á skyndihjálparnámskeið.  Ég ætla líka að vona að þessi atburður verði til þess að móðir þessara barna sjái til þess í framtíðinni að hennar börn séu ekki eftirlitslaus á randi , hvorki í sundi eða annarsstaðar. Og að síðustu vil ég að það þurfi ekki annað svona tilvik til að foreldrar á Íslandi fari að PASSA BÖRNIN SÍN!!!Það er landlægur plagsiður hjá foreldrum þessa lands að halda að það sé hægt að láta börn ganga sjálfala eins og hvern annan búpening.  Það er alveg ótrúlegt hvað maður verður vitni að upp á hvern einasta dag.  T.d. smábörn sem vart eru farin að ganga eru látin skjögra ein við umferðargötur, meðan að stelpurófan sem hefur verið ráðin til að passa krílið er að SMSast við vinkonur sínar í tuga metra fjarlægð. Barnapían er náttúrulega bara barn sjálf og hefur engar forsendur til að bregðast við ef eitthvað bregður útaf. Einnig horfir maður uppá það að 4 -5 ára pjakkar eru sendir einir út að hjóla, vart búnir að sleppa hjálpardekkjunum og ekki búnir að læra að bremsa.  Nú í vikunni var verið að dæma mann fyrir kynferðisbrot gegn 5 ára barni.. Alveg skelfilegt að svona hlutir skuli gerast.. en af hverju var 5 ára barn eftirlitslaust úti að leika sér, mér er spurn??

Ef fólk er svo andsk... upptekið við að sinna sjálfu sér, að það má ekki vera að því að hugsa um börnin sín þá hefði kannski verið betra að huga að getnaðarvörnum frekar en barneignum...


mbl.is Sautján ára sundlaugarvörður bjargaði tveggja ára barni frá drukknun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband