Nokkrar sennilegar ástæður fyrir notkun lögreglu á piparúða.

Þjálfun lögreglumann er dýr, því er nauðsynlegt að nota þjálfun þeirra svo hún fari ekki til spillis. Svo er piparúðinn líka dýr og er alveg að vera kominn fram yfir síðasta söludag. Á tímum aðhalds og sparnaðar væri synd að þurfa að fleygja ónotuðum piparúða. Og svo er Björn B. að hætta sem dóms og hermálaráðherra og ég veit að það gleður karlinn alveg ósegjanlega að sjá hvað hann er búinn að vinna vel að framgangi lögreglumála í landinu. Og að lokum langlíklegasta skýringin og sjálfsagt sú eina rétta: Það eru alltaf einhverjir andsk.... örvitar sem skemma góð mótmæli með skrílslátum og hálfvitahætti.

Og þá er ég ekki bara að tala um lögguna...

Kveðja;


mbl.is Lögregla beitti piparúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: TARA

Sammála.

TARA, 28.1.2009 kl. 21:18

2 identicon

Það var ekkert ofbeldi þarna, engin skemmdarverk, bara piparúði lögreglu. það mun ekki vera hægt að halda öðru fram, sannaðu til

kv

jón

Jón (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 21:19

3 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Jón: Fyrst svo er þá hljóta einhverjar aðrar af ofangreindum skýringum mínum að gilda.

Ólafur Jóhannsson, 28.1.2009 kl. 21:26

4 identicon

Já, BB. Einfalt. En hann er að fara, þannig að :)

Jón (IP-tala skráð) 28.1.2009 kl. 21:28

5 Smámynd: corvus corax

BB er að sýna hinum NATO-glæponunum hvað hann hefur rosalega góðan einkaher sem kann alveg á spraybrúsa og prik. Sem betur fer er þessi djöfull í mannsmynd að hverfa úr ríkisstjórninni.

corvus corax, 28.1.2009 kl. 22:08

6 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Krummi: Þú ert orðljótur leiðindapési og mér þætti vænt um að þú gerðir annað af tvennu: Bættir orðfæri þitt eða skrifaðir ekki athugasemdir á bloggsíðu mína.

Kveðja;

Ólafur Jóhannsson, 28.1.2009 kl. 22:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband