Þetta eru bestu mjólkurkýrnar..

Það er alltaf gaman að sjá hve gífurlega duglegir sumir einstaklingar eru að vinna samfélaginu gagn.  Þegar gjaldendalistinn kemur þá sést vel hvaða einstaklingar eru þeir verðmætustu í þjóðfélaginu.  En, - alltaf skríða út úr holum sínum öfundarmenn sem fara að fjargviðrast yfir því hve þetta sé mikið óréttlæti og mikið vont að þessir menn geti bara grætt og grætt og bla bla bla.. Það ætlar seint að síast inn í hausinn á þessu öfundarpakki að það er okkur alveg bráðnauðsynlegt að hafa svona fólk til að drífa áfram þjóðfélagið og draga vagninn í bættum lífskjörum.  Það er ekki eins og auðmenn Íslands hafi auðgast á því að mergsjúga verkalýðinn. Þeir sem eru að öfundast út í þetta duglega fólk ætti að skammast sín og hætta þessari samanburðarsýki sem það er svo illa haldið af.  Og við stuttbuxnaliðið í SUS vil ég segja:  Hættið þessu væli um að það megi ekki birta skattskrána,  við rekum öll þetta þjóðfélag saman og því er það sjálfsagt að það komi fram hvað hver og einn leggur til samfélagsins.
mbl.is Hreiðar Már Sigurðsson gjaldahæstur í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband